6. fundur
velferðarnefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 20. febrúar 2017
kl. 09:03
Mættir:
Nichole Leigh Mosty (NicM) formaður, kl. 09:00Vilhjálmur Árnason (VilÁ) 1. varaformaður, kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN) fyrir Hildi Sverrisdóttur (HildS), kl. 09:00
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:00
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:00
Jóna Sólveig Elínardóttir (JSE), kl. 09:00
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:00
Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 5. fundar samþykkt.
Á fund nefndarinnar mættu Ágúst Þór Sigurðsson, Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir og Hildur Sverrisdóttir Röed frá velferðarráðuneyti. Gerðu þau grein fyrir sjónarmiðum sínum um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Ákveðið var að meiri hluti nefndarinnar flytti frumvarp um málið.
Halldóra Mogensen, fulltrúi Pírata, óskaði eftir því að eftirfarandi yrði bókað í fundargerð:
„Halldóra Mogensen óskaði eftir því að fá álit sérfræðinga í stjórnskipunarrétti og bótarétti um það hvort að fyrirhuguð breyting, sérstaklega með tilliti til afturvirkni laganna, standist stjórnarskrá eða geti mögulega varðað bótaskyldu ríkisins gagnvart ellilífeyrisþegum. Samkomulag varð um það í nefndinni að þeir sérfræðingar yrðu kallaðir til á milli 1. og 2. umræðu.“
3) Önnur mál Kl. 10:35
Fleira var ekki gert á fundinum.
Fundi slitið kl. 10:35